Hafa samband

magnus@hugvernd.is
S. 517 1718

Dr. Magnús Blöndahl Sighvatsson

Magnús er sálfræðingur, sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna og klínískur atferlisfræðingur. Magnús fékk starfsleyfi sem sálfræðingur frá Landlækni í desember 2006 og réttindi sem sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna í október 2024. Hann er jafnframt klínískur atferlisfræðingur vottaður af Samtökum um atferlisgreiningu á Íslandi (SATÍS) (ICE-ABA certified) frá október 2024. Magnús sérhæfir sig í hugrænni atferlismeðferð (HAM) við áráttu-og þráhyggjuröskun, heilsukvíða, almennri kvíðaröskun, félagsfælni, felmturröskun og þunglyndi hjá fullorðnum. Hann hefur viðamikla reynslu í greiningu og meðferð geðraskana hjá fullorðnum. Árin 2006-2016 starfaði Magnús sem sálfræðingur á geðsviði Landspítala, bæði á innlagnadeild og á göngudeild. Frá árinu 2007 hefur Magnús starfað sem sjálfstætt starfandi sálfræðingur og rekið eigin sálfræðistofu. Frá árinu 2007 hefur Magnús starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands og frá árinu 2013 við Háskólann í Reykjavík. Magnús var skipaður klínískur lektor við sálfræðideild Háskóla Íslands árið 2017 og handleiðir hann nemendum í lokaverkefnum í klínískri sálfræði bæði í grunn-og framhaldsnámi.

Þjónusta:

Einstaklingsviðtöl, fjarviðtöl, handleiðsla fyrir fagfólk og fræðsla fyrir hópa og fyrirtæki um sálfræðileg málefni.

Menntun og rannsóknir: Magnús útskrifaðist með BA próf í sálfræði árið 2001 og MA próf í sálfræði árið 2006. Hann lauk doktorsprófi í heilbrigðisvísindum árið 2023 frá Læknadeild Háskóla Íslands. Í doktorsverkefni sínu rannsakaði Magnús virka þætti í HAM þ.e. hvaða inngrip í HAM valda því að meðferðin er árangursrík. Magnús hefur birt fjölda vísindagreinar í erlendum tímaritum um rannsóknarefni sín auk greina á íslensku um HAM. Magnús starfar einnig sem ritrýnir fyrir erlend og íslensk fagtímarit.