Hafa samband

mottaka@asm.is
S. 517 1718

Tinna Jóhönnudóttir

Tinna starfar í dag sem sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni en hún fékk útgefið starfsleyfi sem sálfræðingur frá Embætti landlæknis árið 2013 og sérfræðileyfi árið 2025.

Tinna lauk cand. psych. námi frá Háskóla Íslands árið 2013 og hóf að því loknu störf á Landspítala þar sem hún vann frá 2013 til 2017. Þar vann hún með fjölbreytt mál en sinnti lengst af taugasálfræðiþjónustu í heilaskaðateymi Grensásdeildar. Samhliða þeirri vinnu var hún í hlutastarfi á Reykjalundi. Hún hefur því mikla reynslu af endurhæfingu, ásamt því að vinna með erfiðleika og vanlíðan í kjölfar slysa og veikinda.

Tinna hóf störf á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni í desember 2017 og hefur síðan þá lagt áherslu á úrvinnslu áfalla, auk þess sem hún sinnir bæði handleiðslu og fræðslu. Hún lauk námi og þjálfun fyrir EMDR meðferðaraðila árið 2020 og tveggja ára sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá Endurmenntun Háskóla Ísland árið 2021.

Tinna sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá ungmennum og fullorðnum, til dæmis á áfallastreitu, kvíða, lágu sjálfsmati og aðlögunarvanda. Hún nýtir meðal annars hugræna atferlismeðferð, hugræna úrvinnslumeðferð og EMDR í sínu starfi.
Tinna gerir einnig taugasálfræðilegar athuganir fyrir fullorðna, til dæmis eftir heilahristing eða heilaáverka, og veitir ráðgjöf og meðferð eftir þörfum í kjölfarið.

Hægt er að panta viðtal hjá Tinnu hér til vinstri (í gegnum Noona), með því að senda tölvupóst á mottaka@asm.is eða hringja í síma 517 1718.