Áfalla- og sálfræðimiðstöðin kynnir með stolti opnun nýs útibús í Vestmannaeyjum ásamt henni Ragnheiði Helgu Sæmundsdóttur sálfræðing sem gengin er til liðs við þann faghóp sem starfar hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni. Ragnheiður mun vera í forsvari fyrir útibú okkar í Vestmannaeyjum og vonum við að starfsemin verði góð viðbót við þá þjónustu sem fyrir er í Eyjum. Hér má sjá viðtal við Ragnheiði sem birtist í Eyjar.net.